Opinn skóli
þriðjudaginn 5. maí frá klukkan 10:00-12:00
Þriðjudaginn 5. maí klukkan 10:00-12:00 mun Grunnskóli Bolungarvíkur vera öllum opinn. Þema opna skólans að þessu sinni er Hafið. Yngsta stig hefur undanfarnar vikur fjallað um Atlandshafið og það sem þar lifir, unglingastig hefur tekið Kyrrahafið fyrir og miðstig hefur unnið enn frekar út úr efni sínu úr HOBB verkefninu og er yfirskrift þeirra ”Krabbar í Bolungarvík”.
Sýndar verða stuttmyndir af námskeiðinu Krakkar filma! sem Erlingur Óttar Thoroddsen kvikmyndaleikstjóri og kennari stýrði.
Þetta er venjulegur skóladagur þar sem nemendur mæta kl. 08:00 og lýkur honum samkvæmt stundatöflu.
Við hvetjum öll til þess að koma á opna skólann og sjá og fá kynningar á verkefnum og vinnu síðustu daga og vikur.
Opni skólinn er í samstarfi við Barnamenningarhátíðina Púkinn sem haldinn er í fjórða sinn dagana 27. apríl til 8. maí.

