Öryggi á skólalóð
Við erum vel mönnuð, bæði af starfsfólki og nemendum
Grunnskóli Bolungarvíkur leggur mikla áherslu á öryggi og vellíðan nemenda á skólalóðinni. Viðvera og sýnileiki starfsfólks er þónokkur bæði utandyra og innan.
Í frímínútum eru að jafnaði fimm til sex starfsmenn á skólalóðinni þar sem um 70 nemendur eru saman komnir. Þá mönnun teljum við góð og tryggir skýra yfirsýn og yfirleitt skjót viðbrögð við hverju því sem upp kann að koma. Auk þess eru tveir starfsmenn í anddyri skólans og geta skólastjórnendur fylgjast reglulega með útivist nemenda frá skrifstofum sínum.
Starfsfólk skólans sinnir bæði öryggi og velferð nemenda. Félagslegt hlutverk þess felst í að eiga samtöl við nemendur, fylgjast með samskiptum þeirra og hafa vakandi auga með líðan og velferð.
Að lokum má nefna að skólalóðin er farin að láta á sjá og er orðið tímabært að huga að endurnýjun hennar. Við sjáum þar spennandi tækifæri til umbóta og væri afar ánægjulegt að fá nemendur og foreldra með okkur í lið til að móta og þróa skólalóð sem styður enn betur við leik, hreyfingu og vellíðan allra nemenda.

