Pangea stærðfræðikeppnin

27.3.2026

  • Pangea

Grunnskóli Bolungarvíkur á fulltrúa í úrslitakeppninni

Pangea stærðfræðikeppnin er fyrir alla nemendur 8. og 9. bekkja grunnskóla landsins. Markmið keppninnar er að vekja áhuga hjá ungu fólki á stærðfræði. Keppnin var haldin hér á landi í fyrsta sinn árið 2016.

Nemendur í 8. og 9. bekk Grunnskóla Bolungarvík tóku þátt í keppninni og segjum við stolt frá því að einn nemandi okkar í 8. bekk, Ægir Gaukur Sigurðarson, komst í úrslit. 97 nemendum af landinu öllu er boðin þátttaka í úrslitakeppninni í ár þar af 52 úr 9. bekk. Upprunalega voru 4694 nemendur skráðir til keppni úr 62 skólum, 2432 úr 8. bekk og 2262 úr 9. bekk.

Úrslitakeppnin verður haldin í Menntaskólanum við Hamrahlíð laugardaginn 18. apríl. 

Hægt er að fræðast meira um keppnina á heimasíðu hennar:  https://www.pangeakeppni.is/