Sjónlistardagurinn 2026
Þema dagsins 11. mars var pappírs-skúlptúr
Sjónlistadagurinn er samnorrænn myndlistardagur barna og ungmenna sem haldin er hátíðlegur ár hvert. Til sjónlista teljast; myndlist, kvikmyndagerð, ljósmyndun, byggingalist og nytjalist.
Zofia myndmenntakennari lagði þemaverkefni ársins inn fyrir alla nemendur skólans. Þema dagsins í ár var pappírs-skúlpúr þar sem pappír er oft fyrsta skrefið til að raungera hugmyndir. Lögð var áhersla á að skissa á pappír, klippa form úr pappír og nemendum bent á marga listamenn sem gera listaverk út pappír.
Listaverk Charles McGee voru notuð sem kveikja fyrir pappírsskúlptúra. McGee fékk Legacy-verðlaunin 2019 í viðurkenningu fyrir ævilangt afrek og áhrif sem listamaður, kennari, talsmaður og heimsborgari.
Hér fyrir neðan má sjá verk eftir nemendur Grunnskóla Bolungarvíkur.






