Sjúklega súr saga á miðstigi
Frá landnámi til dagsins í dag
Í læsislotu á miðstigi hafa nemendur verið að vinna með bókina Sjúklega súr saga, þar sem Íslandssagan er sögð á skemmtilegan og aðgengilegan hátt frá landnámi til dagsins í dag.
Nemendur drógu um söguleg viðfangsefni og fengu frjálst val um hvernig þeir kynntu sér efnið og miðluðu því áfram. Afraksturinn var fjölbreyttur og skapandi, meðal annars glærukynningar, plaköt, próf, stuttmyndir og þrívíddarverkefni.
Nemendum var skipt í stráka- og stúlknahópa sem unnu með sömu viðfangsefni. Það gaf áhugaverða sýn á hvernig ólíkir hópar nálguðust sama efni og hvaða leiðir þeir völdu til að koma þekkingunni á framfæri.
Að lokinni lotunni kynntu nemendur verkefni sín fyrir samnemendum. Verkefnið fellur vel að markmiðum Aðalnámskrár grunnskóla um læsi, sköpun, samvinnu og tjáningu. Læsislotan er jafnframt hluti af þeirri vinnu skólans að tengja námið við grunnþætti menntunar með fjölbreyttum verkefnum og skapandi skilum.
Við erum stolt af metnaði, hugmyndaauðgi og samvinnu nemenda sem létu Íslandssöguna sannarlega lifna við.




