Skáld í skólum
Er saga í kortunum á miðstigi?
Miðstig Grunnskóla Bolungarvíkur fékk á dögunum góða heimsókn í gegnum verkefnið Skáld í skólum. Í heimsókn komu rithöfundarnir Yrsa Þöll Gylfadóttir og Gunnar Theodór Eggertsson, sem hafa skrifað fjölbreyttar bækur fyrir lesendur á öllum aldri. Sérstaklega var ánægjulegt að fá í heimsókn nemendur á miðstigi úr Grunnskóla Önundarfjarðar, sem komu ásamt kennara sínum til að taka þátt í dagskránni. Það er alltaf gaman þegar nágrannaskólar fá tækifæri til að hittast, læra saman og efla góð tengsl milli skólasamfélaga á svæðinu.
Heimsóknin fellur einstaklega vel að læsislotu skólans sem nú stendur yfir, enda er læsi einn af grunnþáttum menntunar samkvæmt Aðalnámskrá grunnskóla. Markmið verkefnisins er að efla áhuga nemenda á lestri, bókmenntum, sköpun og ritun með því að höfundar heimsæki skóla og deili reynslu sinni af skrifum og sagnagerð.
Í heimsókninni tóku Yrsa og Gunnar nemendur með sér í ferðalag um heima bókanna þar sem kort gegna mikilvægu hlutverki. Nemendur skoðuðu ólík kort úr barnabókum og ræddu hvernig kort geta hjálpað höfundum að skapa nýja heima, þróa persónur og byggja upp áhugaverðar sögur.
Umfjöllunin tengdist sérstaklega vel valnámskeiði miðstigs í myndasögugerð, þar sem nemendur hanna eigin bækur, skapa persónur, þróa söguþráð og teikna myndir. Við vonumst til þess að með heimsókninni hafi nemendur fengið nýjar hugmyndir sem nýtast vel í þeirra sköpunarvinnu.
Við þökkum Yrsu Þöll og Gunnari kærlega fyrir komuna og hlökkum til að sjá hvernig hugmyndir nemenda halda áfram að þróast í læsislotunni og myndasagnaverkefnunum þeirra.


