Skil á milli stiga
Samvinna og faglegt starf á milli stiga
Nemendur á Mölum og í 4. og 7. bekk hafa undanfarna daga farið á milli stiga og bekkja innan skólans. Nemendur á Mölum fengu tækifæri til að prófa sig áfram sem 1. bekkjar nemendur, fjórði bekkur fékk innsýn á miðstig og 7. bekkur kynnti sér og mátaði sig við unglingastigið.
Samhliða þessu hafa verðandi nemendur okkar á Mölum komið úr leikskólanum hingað í grunnskólann. Í þeirri heimsókn kynnast nemendurnir skólaumhverfinu, starfsfólki og skipulagi skólastarfs. Samstarf leik- og grunnskóla hefur reynst farsælt og hefur gengið vel að vinna samkvæmt samstarfsáætlun skólanna tveggja.
Markmið þessara heimsókna sem áður var getið er skýrt og viljum við með þeim auðvelda og styðja við aðlögun nemenda að nýju stigi, stuðla að öryggi, jákvæðu viðmóti og upplifun innan lærdómssamfélagsins.

