Skólaferðalag 9. og 10. bekkjar

26.5.2026

  • Eb974758-8e90-4131-981d-842eceee8b40

Skólinn á skapa góðar minningar

Nú eru nemendur í 9. og 10. bekk í fullu fjöri í skólaferðalagi sínu ásamt 3 starfsmönnum skólans. Ferðin hófst í gær, mánudaginn 25. maí, og var þá farið í keilu og litabolta (e. paintball). Þetta er mikil ævintýra- og upplifunarferð þar sem hópurinn leggur suðurland undir sig og fer í fjölbreyttar dagsferðir frá Hvolsvelli, meðal annars til Vestmannaeyja, Þórsmörk og á baðstaðinn Laugarás. Fyrirhugað er að fara dagsferð aðeins austar, alla leið á Vík.

Í dag reynir á hugrekki og þor hópsins þar sem farið verður í sviflínu (e. zipline) í Hveragerði og flúðasiglingu í Hvítá.

Skólaferðalagið er afrakstur fjáraflana síðustu ára en stærstu fjáraflanir nemenda fyrir ferðalaginu eru íþróttahátíð, dagatal og árshátíð. Hefð er orðin fyrir því að nemendur í 9. og 10. bekk fari saman í skólaferðalag annað hvert ár og má segja að þær fjáraflanir sem farið er í eru mjög mikilvægar.

Við þökkum öllum þeim sem lagt hafa okkur lið til þess að gera þessa ferð að veruleika. 

Hópurinn heldur af stað20260525_080836