Skólahlaup og starfsdagur
3. september
Ólympíuhlaup ÍSÍ, sem áður hét Norræna skólahlaupið, hefur verið fastur liður í skólastarfi fjölmargra grunnskóla frá árinu 1984 þegar hlaupið var haldið í fyrsta sinn. Þessi viðburður er tengdur Íþróttaviku Evrópu / BeActive. Ólympíhlaup skólans mun fara fram fimmtudaginn 3. september. Skóladagurinn er að mestu samkvæmt stundaskrá fram að hlaupi en miðað er við að skóladegi ljúki kl. 12:00 og dægradvöl er lokuð.
Skólahlaupið er mikilvægt tækifæri fyrir nemendur til að njóta hreyfingar, útiveru og samveru með skólafélögum sínum. Við biðjum foreldra að sjá til þess að börnin mæti í þægilegum fatnaði og góðum skóm til hlaupa og séu klædd eftir veðri.
Hlaupið hefst kl. 9:50 við Hrafnaklett með upphitun og fara allir af stað í framhaldi af henni. Við skipulag hlaupsins er tekið mið af aldri, þroska og getu nemenda þannig að vegalengdir séu hæfilegar og viðeigandi fyrir hvern aldurshóp. Að hlaupi loknu fara nemendur í mat.
Starfsdagur hefst hjá starfsfólki kl. 13:00.

