Skólahreysti
Grunnskóli Bolungarvíkur keppir á Akureyri
Á morgun, miðvikudaginn 29. apríl, munu nemendur af unglingastigi leggja land undir fót og fara á Akureyri þar sem keppt verður í Skólahreysti. Liðslitur skólans í keppninni í ár er bleikur.
Grunnskóli Bolungarvíkur mun taka þátt í 2. undankeppni sem haldin er í Íþróttahöllinni. Keppnin verður sýnd í beinni útsendingu á RÚV og hefst útsending kl. 19:45 en keppni hefst kl. 20:05 .
Fyrir hönd skólans keppa þau Ægir Egill Gunnarsson og Hugrún Brynja Guðbjartsdóttir í hraðaþraut, Katla Guðrún Kristinsdóttir mun endurtaka leikinn frá síðasta ári og keppa í armbeygjum og hreystigreip, Suphakan Sukchaem mun taka að sér upphífingar og dýfur. Þau Jóhann Pétur Halldórsson og Vagnfríður Elsa Kristbjörnsdóttir eru varamenn liðsins.

