Skólahreystiferð á Akureyri

4.5.2026

  • Snapchat-471506860

Lið Grunnskóla Bolungarvíkur í 3. sæti í öðrum riðli


Bolvíkingar máluðu Akureyrabæ bleikan þegar þeir mættu í Íþróttahöllina og kepptu í Skólahreysti miðvikudaginn 29. maí. Fulltrúar skólans í keppninni voru þau Ægir Egill Gunnarsson og Hugrún Brynja Guðbjartsdóttir, Katla Guðrún Kristinsdóttir, Suphakan Sukchaem, Jóhann Pétur Halldórsson og Vagnfríður Elsa Kristbjörnsdóttir. Keppnin gekk frábærlega fyrir sig og var það Egilsstaðaskóli sem bar sigur úr býtum en lið Grunnskóla Bolungarvíkur hreppti 3. sæti riðilsins. Keppt er í níu riðlum í Skólahreysti og á skólinn möguleika á að komast í úrslitakeppni Skólahreystis í lok maí.

Verkmenntaskólinn á Akureyri var með opið hús þennan sama dag og gátu nemendur okkar heimsótt VMA, skoðað skólann og fengið kynningu á honum. Skólastjórnendur nýttu einnig ferðina til skólaheimsókna þar sem þeir kynntu sér stoð- og stuðningsteymi.

Frábær stuðningur! Liðslitur skólans var bleikur. 

20260429_200918

20260429_194743

20260429_203953

20260429_201641

20260429_203354