Skólasetning
Grunnskóli Bolungarvíkur settur í 145 sinn
Ræða skólastjóra við skólasetningu Grunnskóla Bolungarvíkur 21. ágúst.
Nú haustar að
Einhverja nóttina koma skógarþrestirnir
að tína reyniber af trjánum
áður en þeir leggja í langferðina yfir hafið,
en það eru ekki þeir sem koma með haustið
það gera lítil börn með skólatöskur
Þetta ljóð samdi skáldkonan Vilborg Dagbjartsdóttir og kemur það ávallt upp í huga minn þegar haustar að og skólastarf hefst.
Kæru nemendur, foreldrar og starfsfólk Grunnskóla Bolungarvíkur mikið er gott að sjá ykkur.
Hér stend ég, Guðbjörg Stefanía, í nýju hlutverki, sem skólastjóri Grunnskóla Bolungarvíkur. Ég, skólastjóri í skólanum þar sem ég lauk grunnskólagöngu. Hver veit nema eitthvert ykkar kæru nemendur eigi eftir að standa í þessum sporum. Það að vera skólastjóri er nýtt fyrir mér og ég verð að viðurkenna að ég finn fyrir allskonar tilfinningum þá sérstaklega fyrir spennu og stressi. Ég get ímyndað mér að við séum nokkur sem finnum fyrir þessum tilfinningum hér í dag. Ég er þess fullviss að það er okkur hollt að vera bæði spennt og stressuð, það þýðir að við viljum standa okkur og gera vel - það er allavega mitt markmið.
Skólinn okkar á að skapa góðar minningar
Í skólann eru skráðir 132 nemendur frá Mölum og upp í 10. bekk.
Starfsmenn eru um 35 og erum við með auglýsingu í loftinu þar sem við leitum eftir stuðningsfulltrúum.
Eflaust hafið þið tekið eftir nýjum andlitum í starfsmannahópnum. Melkorka Brá Karlsdóttir kennir ensku og samfélagsfræði á miðstigi ásamt sundi á mið- og unglingastigi. Ísabel Jasmín Almarsdóttir kennir íþróttir á öllum stigum ásamt ensku í 8. og 10. bekk. Harpa Ósk Lárusdóttir kemur inn sem stuðningur á yngsta stigi og Eygló Inga Baldursdóttir sem stuðningur á miðstigi. Guðrún Ósk Ásmundsdóttir verður umsjónarkennari 9. bekkjar og Harpa Sjöfn Friðfinnsdóttir verður kennari í námsveri á yngsta og miðstigi. Paulina kemur inn sem skólaliði og starfsmaður dægradvalar.
Flestir aðrir eru á sínum stað, Steina, Karitas, Systa, Sóley, Ella og Bjarnveig verða á yngsta stigi ásamt þeim Hörpu Rut, Sigrúnu, Gulla og Súlu. Karitas er í sundkennslu á stiginu. Zofia sér um myndmennt og heimilisfræði með sínu sniði á öllum stigum.
Á miðstigi eru breytingar þar sem þær Auður og Rúna verða með umsjón yfir öllu stiginu en María er þar sem stuðningsfulltrúi. Á miðstigi erum við að fara í samkennslu með einstaklingsmiðað nám að leiðarljósi, foreldrar og nemendur á miðstigi hafa verið boðaðir á fund mánudaginn 31. ágúst klukkan 8 í þeim tilgangi að fara yfir skipulag og tilhögun stigsins.
Á unglingastigi eru ásamt Guðrúnu Ósk og Ísabel þau Jói, Hrafnhildur og Alda en Olga Agata kemur í þeirra teymi eftir fæðingarorlof.
Elín Þóra mun koma að öllum stigum sem ÍSAT kennari. Lára stendur enn sína plikt sem ritari og Martyna sem skólaliði. Þær Linda og Hanna Björg standa vaktina í mötuneytinu. Stella Guðrún þroskaþjálfi heldur áfram sínu starfi hér í skólanum og Jana á bókasafninu. Helga Jónsdóttir kemur aftur inn í skólann úr námsleyfi og sinnir stöðu deildarstjóra stoðþjónustu.
Helena Hrund Jónsdóttir mun ekki starfa lengur sem skólahjúkrunarfræðingur, hún hefur þó ekki sagt skilið við okkur þar sem hún starfar í geðheilsuteymi barna á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Í hennar stað mun Guðrún Kristín Bjarnadóttir sinna skólahjúkrun og verður viðverutími hennar hér í skólanum á mánudögum.
Við erum að leita lausna og leiða svo við getum boðið nemendum í 1. og 2. bekk vistun eftir klukkan 14:00 í Dægradvöl. Heilsuskólinn er á sínum stað og er Olga yfir honum, hún ásamt öðru starfsfólki sem munu koma að heilsuskólanum eru að skipuleggja allskonar skemmtilegt sem í boði verður.
Starfsfólk skólans hefur verið að fara yfir skólareglur og eru ekki miklar efnislegar breytingar á þeim en þær verða kynntar ykkur öllum innan tíðar. Grunnskóli Bolungarvíkur heldur áfram að vera símalaus skóli og hefst það ekki nema með samvinnu á milli heimilis og skóla, samvinnu á milli okkar hér í skólanum og ykkur nemendur og foreldrar. Geymum símana bara heima en ef við nauðsynlega þurfum þá fara þeir beint í geymslu til Láru á meðan við erum í skólanum.
Mikilvægt er að kynna sér skóladagatal skólans en það er aðgengilegt á heimasíðu okkar. Þar má sjá og fara yfir skipulag skólaársins og þá viðburði sem fyrirhugaðir eru. Til að mynda eru nemendur 7. bekkjar að fara á mánudaginn í skólabúðirnar á Reykjum og nemendur úr 8. bekk að fara í fermingarbúðir.
Við höldum áfram í samstarfsverkefninu Click save. Nemendur okkar hafa farið til Tyrklands og Rúmeníu í því verkefni og í september verður farið til Ítalíu, eftir áramót fáum við svo kennarahóp hingað til okkar.
Verkefnið Hafið okkar, blá Bolungarvík sem vakti mikla athygli á síðasta ári gekk svo vel að við munum vera í áframhaldandi samstarfi við Háskólasetur Vestfjarða.
Það er alltaf smá puð að setja saman stundatöflu og sjá til þess að allir fái það sem þeir eiga að fá er varðar þær námsgreinar sem liggja fyrir. Núverandi 10. bekkur hafði áhrif á sitt námsskipulag þegar fyrrverandi skólastjóra var afhentur undirskriftalisti um að árgangurinn vildi fá að vera sér í íþróttum, það var tekið tillit til þess. Þó var ekki tekið tillit til hins undirskriftarlistans sem var afhentur þar sem unglingastig vildi sleppa því að fara í skólasund - því getum við ekki breytt hér í Bolungarvík þar sem það eru lög um skólasund og það skulu allir sækja.
Þann 7. ágúst tilkynnti háttvirtur menntamálaráðherra breytingar á námsmati í grunnskóla. Breytingarnar fela það í sér að einkunnir verða birtar í tölum í stað bókstafa og verða breytingarnar innleiddar í tveimur áföngum, í 10. bekk næsta vor og 4. og 7. bekk vorið 2028. Eftir góðan vinnudag kennara á mánudaginn síðasta erum við nokkuð bjartsýn og munum við takast á við þessar breytingar eins og við getum. Foreldrum verður kynntar allar breytingar.
Í mér var einhver hundur,
allt var að detta í sundur …
En í sjálfum mér vann ég
uns sjálfan mig fann ég.
Þá varð aldeilis fagnaðarfundur.
Þórarinn Eldjárn samdi þessa vísu sem heitir Sjálfsleit og óska ég nemendum þess að þeir finni sinn stað hér í skólanum því eins og ég sagði áðan þá á skólinn að skapa góðar minningar.
Að því sögðu segi ég Grunnskóla Bolungarvíkur skólaárið 2026-2027 settan.
Fjölmennt var á skólasetningunni


