Skólasetning skólaársins 2026-2027

20.8.2026

  • 20260413_111926

Föstudaginn 21. ágúst klukkan 12:15

Nú er sumarfríinu að ljúka og flestir farnir að huga að skólabyrjun. Skólasetning Grunnskóla Bolungarvíkur verður föstudaginn 21. ágúst kl. 12:15 á sal skólans. Að lokinni skólasetningu gefst nemendum og aðstandendum þeirra tækifæri til að fara um ganga skólans, hitta kennara og fara í sínar bekkjarstofur. Miklar framkvæmdir eru í kringum skólann og verður gengið inn um innganginn að mötuneyti skólans við skólasetningu.

Skólahald hefst á útidögum mánudaginn 24. ágúst kl. 08:00 og munu umsjónarkennarar senda nánara skipulag er þá varðar.

Minni foreldra á að skrá nemendur 1.-4. bekkjar í heilsuskóla þegar kallað verður eftir því. Heilsuskólinn er í boði fyrir 1.-4. bekk frá kl. 13:00-14:00.