Skólaslit
Útskrift 10. bekkjar
Skólaslit fóru fram í holi skólans föstudaginn 30. maí. Foreldrar og aðstandendur nemenda okkur fjölmenntu sem gaman var að sjá. Halldóra Dagný, skólastjóri, fór m.a. yfir starf vetrarins og sunginn var skólasöngurinn. Gaman var að sjá glaðværa nemendur halda út úr skólanum eftir starf vetrarins, tilbúna í ævintýri sumarsins.
Á skólaslitum var kunngjört hvaða lið sigraði Boló-leikana. Einungis eitt stig skildi að fyrsta og annað sæti og var svo úr að Bleika liðið sigraði.
Síðar um daginn var sérstök útskrift 10. bekkjar frá Grunnskóla Bolungarvíkur. Útskriftin er alltaf mjög hátíðleg fyrir starfsfólk skólans, aðstandendur og þá sérstaklega nemendur 10. bekkjar. Guðbjörg Stefanía, deildarstjóri, stýrði athöfninni, Halldóra Dagný, skólastjóri, og Hildur, umsjónarkennari 10. bekkjar, tóku til máls. Nemendur tóku lagið ásamt því að afhenda kennurum sínum þeim Hildi og Vésteini þakklætisvott fyrir samveruna. Alda Karen, stuðningsfulltrúi, fékk sérstaka viðurkenningu og þakklætisvott fyrir að hafa verið með bekknum alla sína grunnskólagöngu og gott betur.
Bjarta framtíð kæru nemendur.