Skólaslit
144 skólaári Grunnskóla Bolungarvíkur lokið
Skólaslit fóru fram á útisviði skólans miðvikudaginn 3. júní. Foreldrar og aðstandendur nemenda okkur fjölmenntu sem gaman var að sjá. Nemendur okkar á Mölum sungu tvö lög eftir Doktor Gunna við skólaslitin en þann 7. maí tóku nemendurnir þátt á tónleikunum „Söngvavor – Einn fyrir alla, allir fyrir einn“ sem fram fór í Ísafjarðarkirkju. 4. bekkur kom einnig fram og fóru með ljóðið "Orð" sem var hluti af atriði þeirra í Litlu upplestrarkeppninni sem fram fór í vetur.
Halldóra Dagný, fráfarandi skólastjóri, fór yfir skólaárið og þá viðburði og verkefni sem skólinn hefur tekið þátt í. Halldóra Dagný lætur af störfum sem skólastjóri eftir 7 ára starf en hún hefur starfað við skólann í 29 ár. Kristinn Gauti, staðgengill bæjarstjóra, afhenti Halldóru þakklætisvott fyrir vel unnin störf frá Bolungarvíkurkaupstað ásamt því að Helena Hrund gerði slíkt hið sama fyrir hönd foreldrafélags skólans.
Á skólaslitum kunngjörði Anna Soffía hvaða lið sigraði Boló-leikana. Einungis eitt stig skildi að fyrsta og annað sæti og var svo úr að rauða liðið sigraði í ár.
Síðar um daginn var sérstök útskrift 10. bekkjar frá Grunnskóla Bolungarvíkur. Útskriftin er alltaf mjög hátíðleg fyrir starfsfólk skólans, aðstandendur og þá sérstaklega nemendur 10. bekkjar. Guðbjörg Stefanía, deildarstjóri, stýrði athöfninni, Halldóra Dagný, Elín Elísabet, Jóhann umsjónarkennari 10. bekkjar og Arnar Leví, útskriftarefni, tóku til máls. Nemendur höfðu útbúið tvö myndbönd, annað með myndefni úr nýloknu skólaferðalagi og hitt með svipmyndum af skólagöngu þeirra. Foreldrar voru með útskriftar spurningakeppni sem fór vel í mannskapinn og buðu upp á veitingar.
Bjarta framtíð kæru nemendur. 


