Sköpunarlotu unglingastigs lýkur með kynningum
Fjölbreytt og skemmtileg verkefni
Undanfarnar vikur hafa nemendur á unglingastigi unnið að fjölbreyttu og skapandi verkefni í tengslum við sköpunarlotu skólaársins. Nemendur fengu frjálsar hendur til að hanna og skapa eigin afurð frá grunni og héldu jafnframt verkdagbók yfir vinnuferlið.
Margar frumlegar hugmyndir litu dagsins ljós, meðal annars hönnun á fótboltavöllum, íbúðarhúsum og fótboltaliðum, morðgátu, uppskriftabækur, spil, tónlistarverkefni, málverk og margt fleira. Verkefnin sýndu vel þann fjölbreytileika og hugmyndaauðgi sem einkennir nemendahópinn.
Sköpun er einn af sex grunnþáttum menntunar samkvæmt Aðalnámskrá grunnskóla og með verkefnum sem þessum fá nemendur tækifæri til að þróa frumkvæði, sjálfstæði og hæfni til að hrinda eigin hugmyndum í framkvæmd. Verkefnið fellur jafnframt vel að Menntastefnu Bolungarvíkurkaupstaðar sem leggur áherslu á skapandi hugsun, virka þátttöku og fjölbreytt nám.
Lotunni lauk í dag á unglingastigi með kynningum þar sem nemendur sýndu afrakstur vinnu sinnar og sögðu frá ferlinu á bak við verkefnin. Það var ánægjulegt að sjá þann metnað, sköpunarkraft og áhuga sem nemendur lögðu í verkefnin sín.








