Skuggakosningar á miðstigi
Máttur meyja og manna eða Betri Bolungarvík
Nemendur sömdu í sameiningu spurningar sem sendar voru til beggja framboða og komu fulltrúar beggja framboða í heimsókn til að svara spurningunum.
Þeir nemendur sem vildu, fengu að vera í kjörstjórn og sem dyraverðir. Við fengum formann kjörstjórnar til að taka á móti okkur á kjörstað og fræða nemendur um hvað má og hvað má ekki gera í kjörklefanum og á kjörstað.Síðan tók kjörstjórn og dyraverðir til starfa og nemendur gengu til kosninga. Kjörstjórnir þurftu að fara yfir hvort viðkomandi væri á kjörskrá og mætti kjósa.
Á kjörskrá voru 33 nemendur á miðstigi í GB.Kosningaþátttaka 94%, auðir og ógildir seðlar voru 3%, K-listi Máttur meyja og manna fékk 55% atkvæða og O-listi Betri Bolungarvík fékk 42% atkvæða.
Alli nemendur voru mjög sáttir og fannst gaman að taka þátt í þessu verkefni.




