Starfsdagur og kennarastýrð viðtöl

19.11.2026

  • 20260413_111926

24. og 25. nóvember

Þriðjudaginn 24. nóvember verður starfsdagur við Grunnskóla Bolungarvíkur. Þann dag er kennsla felld niður og nemendur mæta ekki í skólann. Dægradvöl verður jafnframt lokuð.

Starfsdagar eru mikilvægur þáttur í skólastarfi og gefa starfsfólki tækifæri til að sinna faglegri þróun, samvinnu, undirbúningi og endurmati á skólastarfinu. Slík vinna styður við markmið Menntastefnu Bolungarvíkur um öflugt lærdómssamfélag, fagmennsku og stöðuga umbótamenningu í þágu nemenda.

Miðvikudaginn 25. nóvember fara fram kennarastýrðviðtöl. Nemendur mæta þá ásamt foreldrum eða forráðamönnum sínum í viðtal á þeim tíma sem bókaður hefur verið í Mentor. Foreldraviðtöl eru mikilvægur vettvangur fyrir heimili og skóla til að ræða nám, líðan og framfarir nemenda og samræmast bæði áherslum Menntastefnu Bolungarvíkur og Aðalnámskrár grunnskóla um virkt samstarf heimila og skóla.

Við viljum minna á að mæting í foreldraviðtal telst hluti af skólasókn nemenda. Ef nemandi er veikur eða í leyfi þann dag þarf að tilkynna það til skólans með hefðbundnum hætti. Athugið að dægradvöl verður lokuð 25. nóvember.

Óskilamunir leita eigenda

Óvenju mikið magn óskilamuna hefur safnast upp í skólanum það sem af er vetri. Við hvetjum foreldra og forráðamenn til að nýta tækifærið þegar þeir koma í kennarastýrðviðtöl og skoða hvort þar leynist eigur barna þeirra.

Óskilamununum verður komið fyrir innan við aðalinngang skólans og verða þeir aðgengilegir meðan á foreldraviðtölum stendur.

Við hlökkum til að hitta nemendur og foreldra í foreldraviðtölunum og þökkum fyrir gott samstarf heimilis og skóla.