Stöðu- og framvindupróf Matsferils
Nemendur í 4., 6. og 9. bekk þreyttu prófin
Það sem af er mars mánuði hafa nemendur í 4., 6. og 9. bekk þreytt stöðu- og framvindupróf Matsferils í lesskilningi og stærðfræði.
Tilgangur stöðu- og framvinduprófa í lesskilningi og stærðfræði er að draga upp sem nákvæmasta mynd af stöðu nemanda og framvindu í námi, hvar áskoranir og styrkleikar liggja svo hægt sé að mæta námslegum þörfum nemenda á árangursríkan hátt. Hægt er að afla sér frekari upplýsinga um prófin á vef Miðstöð menntunar og skólaþjónustu .

