Stóra upplestrarkeppnin

3.3.2026

  • 20260302_113743

í 7. bekk, Grunnskóla Bolungarvíkur

Þátttaka 7. bekkinga í Stóru upplestrarkeppninni er áratuga hefð hér í skólanum. Stóra upplestrarkeppni Grunnskóla Bolungarvíkur var haldin 2. mars og voru forráðamenn nemenda í 7. bekk og nemendur í 6. bekk gestir hátíðarinnar.
Dagskráin saman stóð af upplestri upp úr barnabókinni "Ertu Guð, afi?" eftir Þorgrím Þráinsson og flutning á ljóðum Erlu sem var skáldanafn Guðfinnu Þorsteinsdóttur og öðru ljóði að eigin vali. 
Dómnefnd var skipuð þeim Elínu Þóru Stefánsdóttur, formanni nefndarinnar, Öldu Karen Sveinsdóttur og Finnboga Bjarnasyni og má með sanni segja að þeim hafi þótt erfitt að velja á milli keppenda. Á meðan að dómnefnd réð ráðum sínum komu nemendur 3. bekkjar fram og sungu Anímónusönginn úr sýningunni "Ronja Ræningjadóttir" . Þeir nemendur sem þykja standa sig best í skólakeppninni að mati dómaranna munu taka þátt í lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar á norðanverðum Vestfjörðum sem fram fer þann 19. mars í Félagsheimili Bolungarvíkur. 

Úrslit Stóru upplestrarkeppni Grunnskóla Bolungarvíkur urðu þau að Alan varð í 3. sæti, Þórður Elías í 2. sæti og Sigurrós Freyja í 1. sæti. 

20260302_115450