Sumarskóli

4.6.2025

  • 20250530_091332

verður starfandi 5.-27. júní

Skipulag sumarskólans samanstendur af skipulagðri dagskrá fyrir hádegi en eftir hádegi verður almenn gæsla fyrir nemendur á Mölum. Útivera fléttast töluvert inn í starfið alla daga og því mikilvægt að nemendur komi klæddir eftir veðri. Farið verður meðal annars í fjöru- og gönguferðir ásamt fjallgöngum, íþróttastundir í íþróttasalnum ásamt sundferðum svo það ætti engum að leiðast.  

Nemendur í 1. og 2. bekk geta verið í vistun alla daga frá kl. 8:00-12:00, nemendur á Mölum geta verið í vistun frá kl. 8:00 - 16:00 mánudaga til fimmtudaga en frá kl. 8:00 til kl. 12:00 á föstudögum. 

Hægt er að ná í starfsmenn sumarskóla í síma 8937128. 

Starfsmenn sumarskólans verða: Karitas, Aron Ívar, Sævar, Gabriel, Guðmundur Páll og krakkar úr vinnuskólanum.