svakalega lestrarkeppnin

19.10.2026

  • Vidurkenning_svakalega

Nemendur skólans stóðu sig svakalega vel

Svakalegu lestrarkeppninni lauk þann 6. október og viljum við þakka öllum nemendum, foreldrum og starfsfólki fyrir frábæra þátttöku. Keppnin er árlegt lestrarátak fyrir nemendur í 1.-7. bekk sem hefur það að markmiði að efla lestrargleði og hvetja börn til að lesa sem mest, bæði heima og í skólanum. Í ár voru yfir 108 skólar víðs vegar um landið skráðir til leiks. Skólinn sem les í flestar mínútur sigrar keppnina, hlýtur titilinn Svakalegasti lestrarskóli landsins og fær glæsileg bókaverðlaun.

Úrslit kepninnar voru kynnt 15. október og var árangurinn okkar nemenda einstaklega glæsilegur. Í fyrra lásu nemendur í 1.-7. bekk samtals 68.815 mínútur en í ár lásu þeir alls 73.536 mínútur. Það er aukning um 4.721 mínútu, eða tæplega 79 klukkustundir, frá fyrra ári.

Við erum afar stolt af þessum árangri og þökkum öllum sem lögðu sitt af mörkum. Samstillt átak nemenda, heimila og skóla skilar sér í aukinni lestrargleði, sterkari lestrarfærni og jákvæðu viðhorfi til lesturs. Það er vel við hæfi er að fagna þessum glæsilega árangri nú þegar önnur lota skólaársins hefst, enda verður læsi sá grunnþáttur sem lögð verður sérstök áhersla á á komandi vikum.

 Til hamingju með frábæran árangur og kærar þakkir fyrir þátttökuna!