Svartur dagur
Hrekkjavaka á morgun
Nemendur á yngsta stigi hafa verið að vinna ýmis þemaverkefni tengd hrekkjavökunni. á hrekkjavökunni sjálfri, fimmtudaginn 31. október, mun yngsta stigið bregða á leik og mega nemendur og starfsfólk mæta í búningum.
Á upplýsingaskjánum hefur verið ýmis fróðleikur um hrekkjavöku, dag hinna dauðu og allraheilagramessu. Á morgun er svartur dagur og verður forvitnilegt að sjá hvernig nemendur og starfsfólk mæta í skólann.