Takk fyrir komuna

13.2.2026

  • 20260212_164216

Rúmlegar 220 manns sóttu árshátíð skólans sem haldin var í gær og þökkum við öllum kærlega fyrir komuna.

Mikil vinna liggur að baki sýningu sem þessari og þykir okkur alltaf jafn vænt um þá velvild sem okkur mætir er varðar aðstoð og skipulag. Nemendur á unglingastigi unnu að auglýsingagerð, sáu um sviðsmyndir atriða og tæknileg atriði svo fátt eitt sé nefnt.

Nmendur á yngsta stigi mættu sem litlir gulir karlar sem kalla sig Skósveina (e. Minions) og dönsuðu þeir og sungu. Á miðstigi fóru þeir Sveppi og Villi í leit að skipinu Titanic og urðu á vegi þeirra ýmsar ævintýrapersónur. Í fyrsta sinn í nokkur ár sýndu nemendur 10. bekkjar kennaragrín og settu nemendur á unglingastigi punktinn yfir i-ið með uppsetningu á leikritinu Matilda. 

Árshátíð 2026