Takk fyrir komuna
Við erum stolt af starfinu sem fram fer í skólanum, þá sérstaklega á degi sem þessum.
Í gær tókum við á móti 80-90 manns á uppskeruhátíð þemadaga skólans um hafið.
Nemendur skólans hafa fræðst um hafið, hættur sem steðja að hafinu og lífríki þess. Einnig hafa þeir fræðst um eyjar og lönd, menningu, dýr og strauma og komu nemendur þeirri vitneskju fram með fjölbreyttum hætti.
Í verkefni sem þessu kynnast nemendur okkar enn frekar til dæmis heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og fá tækifæri til að læra gildi þess að lifa í sátt við umhverfið og auðlindir þess.
Hér fyrir neðan er myndband frá deginum, njótið.

