Þemadagar í Grunnskólanum

8.5.2019

  • Harry-potter
Þemadagar verða í Grunnskólanum í Bolungarvík dagana 13. mai - 17. mai nk. Söguhetjan Harry Potter verður þemað þetta árið.

Harry Potter er bókasería sem inniheldur sjö bækur, skrifaðar af breska höfundinum J.K. Rowling. Bækurnar fjalla um ungan, munaðarlausan dreng, sem elst upp hjá hræðilegu frændfólki sínu, Dursley-fjölskyldunni og ævintýri hans í galdraheiminum, ásamt Ron Weasley, Hermione Granger og fleirum. Á ellefta aldursári fær hann bréf frá Hogwarts, skóla galdra og seiða, þar sem útskýrt er fyrir honum að hann sé galdramaður og megi því sækja skóla í Hogwarts. Bækurnar snúast aðallega um baráttu hans við vonda galdramanninn Voldemort, sem drap foreldra Harrys þegar hann stjórnaði galdraheiminum og var að reyna að losna við „muggana“ (fólk sem getur ekki galdrað) og galdramenn af muggættum. Gerðar hafa verið til kvikmyndir, tölvuleikir og ýmislegt fleira í tengslum við þessa frægu söguhetju. Afrakstur þemavikunnar verður til sýnis á opnum degi þann 17.mai nk, nánari tímasetning auglýst síðar.