Þorgrímur Þráinsson heimsótti nemendur

7.10.2026

  • 20261006_110127

Lífsgleði, læsi og jákvæð samskipti

Nemendur á unglingastigi fengu góða heimsókn þriðjudaginn 6. október þegar rithöfundurinn, fyrirlesarinn og fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Þorgrímur Þráinsson kom í skólann með fyrirlestur sinn „Verum ástfangin af lífinu“. Þorgrímur hefur um árabil verið einn vinsælasti fyrirlesari landsins fyrir börn og ungmenni og hefur lagt sérstaka áherslu á jákvæða hugsun, sjálfstraust, samskipti og markmiðasetningu. Í fyrirlestrinum ræddi hann á lifandi og skemmtilegan hátt um mikilvægi þess að hafa trú á sjálfum sér, takast á við áskoranir og nýta styrkleika sína. Nemendur fengu hvatningu til að láta drauma sína rætast og vera besta útgáfan af sjálfum sér.

Þorgrímur hitti einnig nemendur á miðstigi þar sem hann fjallaði um læsi, mikilvægi lesturs og ritunar, skapandi hugsun og það að sýna öðrum virðingu, góðvild og mikilvægi þess að vera hetjan í sínu eigin lífi . Í lok heimsóknarinnar kynnti hann nýjustu bók sína, Litli Kristur. 

Heimsóknin var bæði fræðandi og hvetjandi og gaf nemendum tækifæri til að velta fyrir sér eigin markmiðum, samskiptum og framtíðardraumum. Við þökkum Þorgrími kærlega fyrir komuna.