Treyjudagurinn

3.9.2026

  • ChatGPT-Image-Sep-3-2026-09_21_33-AM

Klæðumst okkar uppáhalds treyju

Grunnskóli Bolungarvíkur tekur þátt í Treyjudeginum föstudaginn 4. september og hvetur alla nemendur og starfsfólk til að taka þátt, klæðast sinni uppáhalds treyju og leggja sitt af mörkum til að gera daginn litríkari og sýnilegri. Með þátttöku okkar sýnum við börnum sem glíma við krabbamein og fjölskyldum þeirra hlýjan stuðning.

Markmið dagsins er að minna okkur á mikilvægi samkenndar, stuðnings og þess að standa saman. Það skiptir engu máli hvaða liði við höldum með. Á Treyjudeginum erum við öll í sama liðinu. 

Hlökkum til að sjá skólann okkar fyllast af litríkum treyjum og góðum anda!

Hægt er að kynna sér daginn á treyjudagur.is