Umhverfisfréttafólk
Undir ísnum frá Grunnskóla Bolungarvíkur í þriðja sæti
Það er orðin árleg hefð í skólanum að nemendur á unglingastigi taki þátt í verkefninu Umhverfisfréttafólk (Young reporters for the Environment). Markmið verkefnisins er að vera valdeflandi vettvangur fyrri ungt fólk að kynna sér umhverfismál með gagnrýnum hætti og miðla upplýsingum til almennings með fjölbreyttum leiðum. Verkefnið er rekið í 44 löndum víðs vegar um heiminn og rekur Landvernd verkefnið hér á Íslandi.
Þrjú af þeim glæsilegu og vel unnu verkefnum sem send voru inn til Landverndar frá skólanum komust í úrslit.
Verkefnin þrjú eru:
Náttúruspil
Veldu réttu hliðina
Undir ísnum
Það eru níu nemendur sem standa að verkefnunum þremur.
Uppskeruhátíð Umhverfisfréttafólks, þar sem tilkynnt verðum um úrslit og verðlaun veitt, fór fram í dag. Fyrstu þrjú sæti keppninnar fá verðlaun og eiga möguleika á að taka þátt í alþjóðlegri keppni verkefnisins en þema hennar er fæðuöryggi og loftslagsbreytingar. Það er því gaman að segja frá því að verkefnið „Undir ísnum“ frá þeim Sigurborgu S. Skúladóttur, Vagnfríði Elsu Kristbjörnsdóttur og Katrínu Lind Rúnarsdóttur hlaut þriðja sætið.
Hægt er að fá frekari upplýsingar um keppnina á heimasíðu Grænfánans.
Efni og nálgun verkefnisins Undir ísnum var rökstutt með vísan í nokkur heimsmarkmið.

Skjáskot af samfélagsmiðlum Grænfánans.


