UngRIFF

16.3.2026

  • 20260313_125103

Dagana 11.-13. mars var námskeið í stuttmyndagerð, Krakkar filma! 

Dagana 11.-13. mars var námskeið í stuttmyndagerð, Krakkar filma!, haldið á unglingastigi í Grunnskóla Bolungarvíkur. Kennari námskeiðsins var Erlingur Óttar Thoroddsen, kvikmyndaleikstjóri og kennari. Markmið námskeiðsins var að efla sjálfstraust, auka færni og öryggi nemenda er varðar kvikmyndagerð.

Nemendum á unglingastigi var skipt í sjö hópa þar sem þeir skiptu með sér hlutverkum, unnu að einni sögu, allt frá hugmynd að fullkláraðri mynd. Afrakstur námskeiðsins eru sjö örmyndir sem eru 1-3 mínútur sem hóparnir unnu að á þessum þremur dögum sem námskeiðið stóð yfir.

Námskeiðið var haldið í samstarfi við Vestfjarðastofu og UngRIFF. Grunnskólinn er ekki eini skólinn sem tekur þátt í verkefninu en valdar örmyndir verða sýndar á Barnamenningarhátíðinni Púkanum sem fram fer dagana 27. apríl til 8. maí. 

Hér má sjá einn hópinn vinna að sinni örmynd. Farið yfir handrit og tækjabúnað. 
20260312_083041

Afrakstur námskeiðsins, örmyndasýning. 

20260313_124547