Uppfærðar skólareglur komnar á vefinn
Sameiginleg ábyrgð á góðu skólasamfélagi
Uppfærðar skólareglur Grunnskóla Bolungarvíkur hafa nú verið birtar á heimasíðu skólans.
Undanfarið hefur starfsfólk skólans unnið markvisst að því að fara yfir og endurskoða reglurnar með það að markmiði að þær styðji sem best við jákvætt, öruggt og uppbyggilegt skólastarf.
Skólareglurnar eru mikilvægur þáttur í að skapa jákvæðan skólabrag þar sem gagnkvæm virðing, ábyrgð og samvinna eru höfð að leiðarljósi. Við hvetjum nemendur og foreldra til að kynna sér reglurnar og ræða þær saman, enda byggir gott skólasamfélag á sameiginlegum skilningi og ábyrgð allra.
Saman byggjum við upp öruggt, jákvætt og farsælt skólasamfélag þar sem öllum gefst tækifæri til að blómstra.

