Upplýsingafundur Rannsóka og greiningar

7.12.2020

Á morgun, miðvikudaginn 9. desember kl. 14:00 til 15:00, verður haldinn rafrænn upplýsingafundur Rannsókna og greiningar í samstarfi við sveitarfélögin. Fundurinn fjallar um foreldrahlutverkið, líðan ungmenna og aðgerðir á tímum heimsfaraldurs.

Fundurinn fer fram í formi fyrirlestra og hafa þátttakendur kost á að senda inn skriflegar fyrirspurnir gegnum vefspjall meðan á fundinum stendur. Með okkur verða Salvör Nordal umboðsmaður barna og Pálmar Ragnarsson sem stýrir fundinum.

Þátttaka er ókeypis og opin öllum. Skráningu á viðburðinn og frekari upplýsingar má finna í viðhengi og á eftirfarandi hlekk https://rannsoknir.is/foreldrahlutverkid/