Vel heppnaður öskudagur
Ýmsar furðuverur, ofurhetjur og karakterar fóru á stjá
Öskudagsgleði skólans heppnaðist í alla staði mjög vel í ár. Flestir nemendur og starfsmenn skólans komu í búningum og kenndi ýmissa grasa í þeim efnum.
Venjulegur skóladagur var til klukkan 9:40 en þá hófst vöfflukaffi og gleðistöðvar. Viðburðateymi skólans ásamt nemendum í 9. og 10. bekk sáu um skipulag stöðva og utan um hald. Nemendum var skipt í hópa þvert á stig og fóru hóparnir í íþróttahúsið í leiki, á dansstöð, mini golf og ýmsa leiki ásamt því að hægt var að fá naglalakk og andlitsmálningu.




