Verkfærakista gegn hatri

5.5.2026

  • 123

Hvað get ég gert?

Verkefnið Verkfærakista gegn hatri er árlegt verkefni sem nemendur í 9. bekk vinna í samfélagsfræði eftir að hafa horft á kvikmyndina Schindler's list. Verkefnið gengur út á það að útbúa kistu sem inniheldur ákveðin verkfæri og áþreifanlega hluti sem hjálpa nemendum að berjast gegn hatri og fordómum. Þetta eru hlutir sem hjálpa þeim að byggja tengsl við ólíka einstaklinga, hvernig þau geta brotið niður staðalímyndir, gert góðverk, og hvers vegna það er mikilvægt að velja góðvild fram yfir grimmd. Nemendur völdu ýmsa hluti, unnu þá, föndruðu eða sköpuðu á einhvern hátt, en formið af vinnunni fengu þau að velja sjálf.  

Spurningarnar sem nemendur unnu með voru: Hvað er hægt að nota til að brjóta niður staðalímyndir? Hvað er hægt að nota til að byggja upp tengsl við fólk sem er ólíkt ykkur? Hvað hvetur þig til að gera góðverk á hverjum degi? Hvað get ég notað sem aðstoðar mig að velja góðvild fram yfir grimmd? Hvað hjálpar ykkur á erfiðum stundum?

Verkefninu lauk svo með sýningu og kynningu nemenda á verkfærakistunni sinni. Nokkrar má sjá hér fyrir neðan þegar nemendur kynntu sína verkfærakistu fyrir samnemendum sínum og skólastjórnendum. 

20260325_12485520260325_124628

IMG_2989
20260325_13060520260325_130502

20260325_130958

20260325_125703