Við erum öll í sama liði

7.9.2026

  • Ce040b6e-f9f0-4312-b4a6-b0eb798ba5f4

Vel heppnaður dagur

Föstudaginn síðastliðinn tóku nemendur og starfsfólk Grunnskóla Bolungarvíkur virkan þátt í treyjudeginum sem haldinn var í fyrsta sinn á Íslandi. Dagurinn var tileinkaður börnum sem greinst hafa með krabbamein og fjölskyldum þeirra. Styrktarfélagið Börn með krabbamein stóð fyrir deginum til að vekja athygli á málefninu

Þátttakan var afar góð og skólinn skartaði fjölbreyttu úrvali treyja. Þar mátti sjá bæði treyjur þekktra íþróttafélaga og landsliða sem og treyjur minni félaga, áhugamálahópa og annarra samtaka. Dagurinn tókst einstaklega vel og setti litríkan svip á skólastarfið.

7e9f0afb-f7fe-4272-9427-005ae7f381b4