Viltu koma að kenna með okkur?

8.7.2021

Í Grunnskóla Bolungarvíkur eru um 130 nemendur og 30 starfsmenn. Starfshættir grunnskólans eru í sífelldri þróun. Skólinn byggir starfsemi sína á faglegu og framsæknu skólastarfi sem tekur ávallt mið af þroska og hæfni nemenda. Í skólanum er fjölmenningarlegt samfélag nemenda, starfsfólks og foreldra.

Eftirfarandi kennarastaða er laus við skólann næsta skólaár frá 1. ágúst 2021.

  • 85% staða á miðstigi (umsjón og enskukennsla á stigi)

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu
  • Metnaður til að vinna eftir fjölbreyttum og árangursríkum kennsluaðferðum
  • Áhugi á starfi með börnum og unglingum
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
  • Góð færni í íslensku máli jafnt í ræðu og riti
  • Reglusemi og samviskusemi
  • Hreint sakarvottorð

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og Sambands sveitarfélaga.

Umsóknum skilað til skólastjóra á netfangið halldoras@bolungarvik.is með upplýsingum um menntun, réttindi og starfsreynslu, ásamt ábendingum um meðmælendur. Móttaka umsókna verður staðfest.

Nánari upplýsingar veitir Halldóra Dagný Sveinbjörnsdóttir skólastjóri í síma 6923736, netfang: halldoras@bolungarvik.is

Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið

Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2021.

Umsóknarfrestur er til og með 23. júlí 2021