Vorskóli
Fjölbreytt dagskrá á vordögum skólans
Nú standa yfir Boló leikar skólans þar sem nemendum, þvert á stig, hefur verið skipt í lið þar sem keppt er í stigasöfnun í allskyns þrautum og leikjum. Á skólaslitum sem hefjast kl. 13:00 verður kunngjört hvaða lið stendur uppi sem sigurvegari.
Í þessari viku hafa verið uppbrotsdagar þar sem margt hefur verið brallað. Nemendur og starfsmenn skólans fóru í lengri og styttri gönguferðir í nærumhverfi skólans.
Yngsta stig fór í rútuferð á Hrafnseyri þar sem það fékk meðal annars fræðslu um fornleifarannsóknir.
Miðstig fór ferð á Ísafjörð þar sem Byggðasafnið var heimsótt og aðstaða siglingaklúbbsins Sæfara var skoðuð og starfsemi hans kynnt nemendum.
Dagar sem þessir eru skemmtilegt uppbrot á skólastarfinu.
Boló leikar í gangi: