Bekkjarmyndataka
1., 4., 7. og 10. bekk
Fimmtudaginn 3. desember verða teknar hefðbundnar bekkjarmyndir af 1., 4., 7. og 10. bekk. Á myndunum verða nemendur ásamt umsjónarkennara og þeim stuðningsfulltrúa sem starfar með bekknum.
Myndatakan er hluti af áralangri hefð skólans og leið til að varðveita góðar minningar úr skólastarfinu. Myndirnar verða ekki birtar opinberlega.
