Evrópski tungumáladagurinn
Vakin er athygli á gildi þess að kunna fleiri tungumál.
Evrópska tungumálaárið 2001, sem var skipulagt af Evrópuráðinu og Evrópusambandinu, hafði erindi sem erfiði og vakti áhuga fólks í milljónavís í 45 þátttökulöndum. Viðburðirnir sem voru skipulagðir í tilefni þess höfðu það að markmiði að hylla fjölbreytileika tungumála Evrópu og hvetja fólk til þess að læra ný tungumál.
