• Fullveldi

Fullveldisdagurinn

  • 1.12.2018

Fullveldisdagurinn er svo nefndur til minningar um að þann 1. desember 1918, tóku gildi milli Íslands og Danmerkur sambandslögin, sem voru lög um það hvernig Ísland stóð í sambandi sínu við Danmörku. 

Í sambandslögunum kom meðal annars fram viðurkenning Danmerkur á því að Ísland væri fullvalda og frjálst ríki. 

Dagurinn varð smám saman að almennum þjóðhátíðardegi fram að lýðveldistíma og var Íslenski fáninn dreginn að húni í fyrsta sinn sem fullgildur þjóðfáni þennan dag.