Fyrir eigin orku í skólann

  • 14.9.2026 - 18.9.2026

14.-18. september

Dagana 14.–18. september munum við reima undir okkur skóna og fara fyrir eigin orku í skólann. Þá eru nemendur og starfsfólk hvött til að koma í skólann og fara úr skólanum með eigin orku — til dæmis gangandi, hlaupandi eða hjólandi. Þetta er þriðja skólaárið þar sem við förum af stað í „Fyrir eigin orku“. Það er ekki að ástæðulausu sem við förum í þetta verkefni í næstu viku en þann 16. september er Dagur íslenskrar náttúru og viljum við vekja athygli á útivist og hreyfingu.