Kennarastýrð viðtöl
Skertur dagur
Í dag fara fram kennarastýrð viðtöl í skólanum. Markmið viðtalanna er að efla samstarf heimilis og skóla og skapa vettvang fyrir samtal um líðan, nám og framfarir nemenda. Slík samskipti eru mikilvægur þáttur í skólastarfi og styðja við farsælt nám og velferð nemenda.
Foreldrar og forráðamenn bóka viðtalstíma í gegnum Mentor. Nemendur mæta í viðtölin ásamt foreldrum eða forráðamönnum sínum.
Þetta er skertur skóladagur og fer ekkert hefðbundið skólastarf fram. Nemendur mæta því einungis á þeim tíma sem þeim hefur verið úthlutað í viðtal.
Dægradvöl er lokuð þennan dag.
