Sýningin Pétur og úlfurinn
fimmtudaginn 29. október
Fimmtudaginn 29. október fara nemendur á Mölum og í 1.-4. bekk á sýninguna Pétur og úlfurinn, sem fram fer í Félagsheimilinu í Bolungarvík kl. 13:20-14:00.
Sýningin er tónlistarævintýri í flutningi Kómedíuleikhússins og Sviðslistahópsins Péturs og tekur um 40 mínútur.
Vegna sýningarinnar fellur Heilsuskóli niður þennan dag og fara nemendur þess í stað á sýninguna. Þeir nemendur sem ekki eru skráðir í heilsuskóla eða dægradvöl er velkomið að koma með okkur á sýninguna endilega látið okkur vita ef þitt barn kemur með.
Að sýningu lokinni:
- Foreldrar nemenda sem ljúka skóladegi kl. 14:00 sækja nemendur í Félagsheimilið, ef við á.
- Nemendur í 2.-4. bekk verða sendir heim að sýningu lokinni.
