Tölum saman um líðan og tengsl
Barnaheill og Geðhjálp á ferð um landið
Geðhjálp og Barnaheill mun funda með í 10. bekk um líðan og veruleika ungmenna okkar í Edinborgarhúsinu á Ísafirði 9. september. Lögð verður áhersla á samskipti, tengsl og líðan. Fundurinn fer fram á skólatíma og tekur um 2,5 klst.

Sama kvöld verður haldinn fundur þar sem niðurstöðurnar verðar kynntar fyrir forráðamönnum og öðrum áhugasömum. Þangað er boðið nemendum, forráðamönnum, sveitarstjórnarfólki, starfsfólki félags- og velferðarmála auk lögreglu. Á þeim fundi verða umræður um efnið og í lokin örtónleikar með Unnsteini Manuel.
Viðburðurinn hefur meðal annars verið auglýstur á samfélagsmiðlum og er hægt að lesa um hann hér
