Mikilvægt forvarnarstarf

22.5.2026

  • 20260522_081956

Forvarnir í Grunnskóla Bolungarvíkur

Undanfarna daga höfum við fengið til okkar í skólann fjölbreyttan hóp sérfræðinga er sinna forvörnum í skólum t.a.m. skólahjúkrunarfræðing og samfélagslögregla .

Nemendur í 1.-4. bekk fengu leiksýninguna og forvarnarverkefnið „ Krakkarnir í hverfinu “, þar sem þau fræddust um líkamlegt ofbeldi og kynferðisofbeldi. Í framhaldi af því kom skólahjúkrunarfræðingur með fræðslu í 1. bekk um kynferðisofbeldi.

Unglingastig fékk samfélagslögregluna á svæðinu í heimsókn til sín þar sem rætt var um neyslu áfengis og fíkniefna. Skólahjúkrunarfræðingur var svo með fræðslu bæði í 9. og 10. bekk um kynheilbrigði.

Við viljum efla nemendur okkar að vera góðar fyrirmyndir og hafa nemendur í 8. og 9. bekk unnið að fjölbreyttum kynningum er varðar t.d. netnotkun og skjátíma barna fyrir nemendur á yngsta stigi. Kynningarnar eru unnar í tengslum við Erasmusverkefnið „Click safe “ sem skólinn er í ásamt þrem öðrum löndum.

Við lýtum svo á að við séum með öfluga og virka forvarnaráætlun hér við skólann, nálgast má forvarnaráætlunina hér .